21. janúar 2009 klukkan 15:54
Jæja koma svo, er ekki kominn tími til að sparka smá í bolta og gera e-ð af viti!!!
Allar að commenta og láta vita hvort þið mætið eða ekki.
Íþróttahúsið Torfnesi í kvöld kl. 20.40-21.30
Ofurkonur
07. janúar 2009 klukkan 16:35
Allar að kommenta og láta vita hvort þið mætið í bolta í kvöld, 20.40-21.30 á Torfnesi.
Koma svo, reynum að halda þessu gangandi, ekki veitir af að hrista af sér jólaspikið!!!
Ofurkonur
17. desember 2008 klukkan 18:47
Kemur loksins blogg, betra er seint en aldrei!!
En eru einhverjar sem ætla að mæta í kvöld?? Ég er geim og hitti Helgu Guðrúnu sem er til og ætlaði að reyna draga e-a víkara með sér. Hvað með ykkur hinar??
Koma svo allar að kommenta og segjast koma í jólafötunum og með jólaskapið :o)
Ofurkonur
05. desember 2008 klukkan 12:39
Ok síðasta tilraun tókst og við ætlum að halda áfram að mæta í bolta. Svo það er næsta miðvikudag klukkan 20.40 til 21.30, fínt að mæta aðeins fyrr svo við getum byrjað strax þar sem þetta er frekar stuttur tími.
Allir að kommenta sem ætla að mæta og vera duglegar að benda fólki á síðuna og draga stelpur með í bolta. Allar stelpur velkomnar og það þarf ekki að hafa svo mikið sem snert bolta áður til að mæta og hafa gaman.
Ofurkonur
03. desember 2008 klukkan 12:03
Ok, reynum þetta einu sinni enn.
Eru e-ar sem mundu mæta í bolta í kvöld, er búin að hitta svo margar sem segjast vilja halda áfram. Svo testum þetta í kvöld en ef við náum ekki nógu mörgum ætla ég að segja tímunum upp á morgun. Við erum alltaf að borga fyrir tímana þó svo við mætum ekki í þá.
Allar að kommenta og láta vita hvort þær koma eða ekki.
Ofurkonur
12. nóvember 2008 klukkan 12:04
allir að kommenta þeir sem ætla að mæta og bara muna að kommenta hvern miðvikudag, þá er auðveldara að fylgjast með hverjir mæta því ef mætingin er léleg þá er óþarfi að vera að mæta sjáiði til! :)...
Nánar
Ofurkonur
04. nóvember 2008 klukkan 16:00
En já nú höfum við verið að reyna hittast á miðvikudögum og spila bolta, mæting síðustu tvo miðvikudaga hefur verið arfaslök. Svo slök að við höfum ekki getað spilað bolta /
Á næsta miðvikudag, 5.nóv, morgun ss., verður gerð síðasta tilraun til að halda þessu áfram. Ef við mætum það fáar að við náum ekki að spila ætlum við að hætta þessu. Það er ömurlegt að vera búinn að plana daginn í kringum boltann eða vera í miðju verki og drífur sig af stað og svo verður ekkert úr þessu. Þá er maður að sjáfsögðu alltof pirraður til að koma sér aftur að verki þegar maður kemur heim og tekur helmingi lengri tíma að byrja, hvort sem það er við uppvaskið, lærdóm eða saumaskap eða annað
Við ætlum að reyna að fara virkja þessa síðu og viljum endilega að allir láti vita hvort þeir ætli að mæta í bolta eða ekki. Ss skráið í komment hvort þið mætið á morgun eða ekki. Ef það verða svo bara e-ar 4 sem ætla að mæta þá geta þær talað saman um hvort þær geri eitthvað eða ekki.
Vona svvooooo að þetta detti ekki niður því það er svo gaman að spila bolta einu sinni í viku, já og bara alveg ágætt að hitta ykkur líka í leiðinni og slúðra smá )
Over and out
Birna
Ofurkonur
26. maí 2008 klukkan 22:37
Fyrsta æfing búin....lots to go!
Það var ekkert svo gott veður, og aðeins verri mæting en við bjuggumst við, og enduðu þær hörðustu í bolta með strákunum....
Þetta má ekki koma fyrir aftur, ha?
Við ákváðum að hafa aðra æfingu á miðvikudagskvöldið, á sama tíma kl. 20:30 og hittast svo tvisvar í viku í sumar, gleði gleði.
Endilega látið það berast og fdragið skvísurnar sem ólmar eru í bolta með.
kv
Lísbet
Ofurkonur
25. júlí 2007 klukkan 00:04
jæja skvísur í ofurkonuliðinu í mýrarboltanum!!!
ég er búin að skrá inn ofurkonur, þið þurfið svo, hver og ein, að fara inn á www.skraning.is og búa ykkur til aðgang, velja svo liðið ofurkonur og sækja um að fá að vera með í því. svo samþykki ég ykkur og þið gangið frá ykkar greiðslum sjálfar þarna á netinu.
þetta er mikið sniðugra en íu fyrra þegar allir áttu að leggja inn á einn og svo fór allt í fokk...muniði?
allavega, skráið ykkur!!
Ofurkonur
20. júlí 2007 klukkan 12:02
hæ hæ stelpur
ég rakst nú inn á síðuna svona eiginlega fyrir tilviljun og ætla að gerast svo djörf að bæta við þessa umræðu þó ég hafi nú ekkert mætt í sumar (íþróttarmeiðsl, skiluru..). Ég sé að þið séuð að spá í buxur og mér datt jako buxur í hug, þar sem ég á einar slíkar og finnst þær mjög góðar. hérna er t.d. mynd af einum slíkum

ég held að það sé séns að ég geti fengið þær á góðu verði ef við höfum áhuga, en svo er spurning með merkingu ef við séum að spá í það, en ég gæti allavega reddað buxunum eða athugað það.
Annars segi ég bara góða skemmtun á ögurballinu, því miður kemst ég ekki með þar sem ég er að fara í borg óttans.
Látið svo vita hvernig ykkur líst á JAKO, ég gæti þá athugað með að fá sendan bækling eða e-ð slíkt.
kv
Halldóra
Ofurkonur